13. fundur
fjárlaganefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 25. október 2023 kl. 09:09


Mætt:

Stefán Vagn Stefánsson (SVS) formaður, kl. 09:09
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 09:09
Eyjólfur Ármannsson (EÁ) 2. varaformaður, kl. 09:09
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 10:19
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 09:09
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:09
Kristrún Frostadóttir (KFrost), kl. 09:09
Teitur Björn Einarsson (TBE), kl. 09:09
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:09
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:09

Björn Leví var fjarverandi til kl. 10:19 vegna annarra starfa á vegum Alþingis.
Jóhann Friðrik Friðriksson vék af fundi kl. 10:45.

Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 1. mál - fjárlög 2024 Kl. 09:09
Til fundarins komu Sigurður Hannesson og Ingólfur Bender frá Samtökum iðnaðarins.
Kl. 11:04. Helgi Pétursson og Þórólfur Matthíasson frá Landssambandi eldri borgara. Þorbjörn Guðmundsson tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði.
Gestirnir kynntu umsögn samtaka sinna og svöruðu spurningum nefndarmanna úr efni þeirra.

2) Önnur mál Kl. 11:00
Rætt var um starfið sem framundan er. Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 11:05
Fundargerð 12. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:06